Þróunarstig
verkefnis skiptir máli
þegar sótt er um styrki til vísindarannsókna, vöruþróunar og undirbúnings markaðssetningar í Evrópu og Bandaríkjunum. Einnig þegar leitað er til erlendra fjárfesta og væntanlegra dreifingaraðila. Mat á þróunarstigi byggir á alþjóðlegum mælikvarða sem kallast Technical Readiness Level, skammstafað TRL. Staðsetning verkefnis/vöru á TRL skalanum ræður því í hvaða sjóði hægt er að sækja styrki, sjá nánar undir „Evris þjónusta“.
TRL 9 Vara tilbúin á alþjóðlegan markað.
TRL 8 Frumgerð kláruð.
TRL 7 Frumgerð kynnt í raunverulegu umhverfi t.d. fyrir hugsanlegum dreifingaraðilum.
TRL 6 Frumgerð kynnt í raunverulegu umhverfi – hjá nokkrum væntanlegum notendum. Ábendingum og athugasemdum um það sem betur má fara safnað saman og lausnin endurbætt í samræmi við það.
TRL 5 Lausnin (varan) er til í frumgerð (prototype) og prófuð og sannreynd í raunverulegu umhverfi t.d. hjá einum væntanlegum notenda.
TRL 4 Lausnin (varan) prófuð og sannreynd í „vernduðu“ umhverfi.
TRL 3 Tilraunir með lausn (vöru).
TRL 2 Hugmynd mótuð frekar.
TRL 1 Hugmynd að lausn (vöru) kviknar.
Nánar um TRL mælikvarðann: https://en.wikipedia.org/wiki/Technology_readiness_level