EVRIS ehf.

Um okkur

Evris ehf var stofnað af Önnu Margréti Guðjónsdóttur, framkvæmdastjóra félagsins, hinn 19. júní 2012. Evris ehf. er staðsett í Íslenska Sjávarklasanum.

Árið 2016 hófst samstarf alþjóðlega ráðgjafafyrirtækisins Inspiralia Group og Evris ehf og hefur samstarfið skilað miklum fjármunum og þekkingu inn í íslenskt nýsköpunarumhverfi. Inspiralia Group á og rekur m.a. fyrirtækin Inspiralia EU (Madrid), Inspiralia US (Miami, Boston, Houston) og FEN Technology (Cambrigde, UK).

Evris ehf. er samstarfsaðili (e. Business Partner) Inspiralia Group á Norðurlöndum og starfar þar undir heitinu Inspiralia Nordics. Einnig vinnum við með fyrirtækinu T:lab í Noregi.

Umfjöllun

um Evris ehf.

Nokkuð hefur verið fjallað um hlutverk og góðan árangur Evris ehf. í íslenskum fjölmiðlum. Hér fyrir neðan er að finna nokkur sýnishorn.

Viðurkenning

Sjávarklasans í janúar 2018

Árið 2018 var Evris ehf veitt viðurkenning Íslenska Sjávarklasans fyrir fyrir að hafa liðsinnt fjölmörgum sprotafyrirtækjum í Klasanum við að afla styrkja til þróunarverkefna. Það var Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegsráðherra sem afhenti verðlaunin.