EVRIS þjónusta
Tenging við erlenda fjárfesta
Samstarfsaðili Evris, Inspiralia Group, hefur aðgang að stóru og öflugu neti alþjóðlegra fagfjárfesta, bæði einstaklinga og sjóða. Þessir fjárfestar geta verið reiðubúnir að koma inn í verkefni, sem sótt er um styrki til og leggja þarf fram verulegt mótframlag, eða með beinni fjárfestingu óháð styrkjum. Með einföldum hætti – sk. Greca platformi – getum við fundið út hvort einhverjir fjárfestar í neti Inspiralia Group henti þínu fyrirtæki. Það er dótturfyrirtæki Inspiralia Group, sem annast þessa þjónustu, en innan þess er áralöng reynsla og þekking á því að tengja saman fjárfesta og fyrirtæki.